Aldurinn færist yfir...Brynja Bergmann Halldórsdóttir
Föstudagur 9. marsÍ tilefni af heimkomu minni héldum við Óskar lítið partý heima hjá honum. Áður en gestirnir gerðu sig heimkomna eldaði maki minn handa mér dýrindis kvöldverð eins og honum einum er lagið (en til þess þarf hann hjálp frá vinum sínum, bjórdósunum!).
Margur maðurinn sá sér fært að koma og var þetta róleg stund með vinum og vandamönnum. Sötraður var mjöður og spjallað fram á kvöld.
Laugardagur 10. mars
Eftir endalaust væl í vekjaraklukkunni drifum við Óskar okkur framúr um 11 leitið og höfðum okkur til fyrir hápunkt helgarinnar, árshátíð Rafmiðlunar. Klukkan eitt áttum við að vera komin á Hótel Örk þar sem fara átti með okkur í skemmtiferð fyrir kvöldið. Rúta bar okkur í skoðunarferð um Ölfus og fór síðan með okkur í Draugasetrið á Stokkseyri. Þar var líftóran hrædd úr öllum starfsmönnum Rafmiðlunar og mökum þeirra!
Þeir sem lifðu draugaganginn af fengu sér svo áfenga drykki í boði Rafmiðlunar á Draugabarnum.
Seinna um kvöldið þegar allir voru búnir að hafa sig til fyrir kvöldið var boðið upp á fordrykk. Þar á eftir var reiddur fram forréttur, aðalréttur og eftirréttur undir sæmilega skemmtilegum skemmtiatriðum starfsmanna Rafmiðlunar. Þegar dansiballið var við það að byrja hópuðumst við nokkrir “krakkar” inná eitt herbergið og sötruðum eigið áfengi og sungum undir gítarglamri. Án árangurs reyndi Óskar að draga mig inn á dansgólfið en sökum mikillar þreytu varð ég að afþakka það kurteisislega. Í staðinn fór ég í háttinn uppá hótelherbergi á meðan Óskar dansaði við gamla fólkið. Veeiii...
Laugardagur 17. mars
Eldsnemma vöknuðum við Elín og Bára og drifum okkur í afmælis-brunch heima hjá Gerði. Kræsingarnar sem þar voru í boði voru draumum líkastar! Við stelpurnar gátum vart slitið okkur frá þeim enda gat Gerður ekki hent okkur út fyrr en um 3 leitið!
Hjartanlega til hamingju með afmælið elsku Gerður mín og vertu innilega velkomin í hóp háaldraðra!
Hún átti afmæli 17. mars
Hún átti afmæli 17. mars
Hún átti afmæli hún Gerður
Hún átti afmæli 17. mars!
Hún varð 21 árs þann 17. mars
Hún varð 21 árs þann 17. mars
Hún varð 21 árs hún Gerður
Hún varð 21 árs þann 17. mars!
Veeeiiiiii........
Seinna um kvöldið lá leið mín í teiti í nýju íbúðinni hennar Lilju á Freyjugötunni. Teitið var hálfgert kveðjuteiti fyrir hana Höllu okkar sem flutti til Svíþjóðar mánudaginn eftir (12. mars). Þar voru saman komnar gömlu bekkjarsysturnar úr 4-S (eða allaveganna allar þær sem eftir eru á landinu). Hvorki Halla, Tedda, Gugga, né Rannveig nenntu niðrí bæ, svo við Lilja, Gerður, Bára og Lúcía urðum að taka það að okkur.... ekki slæmt það!
Farið var á Sólon og dansað við margan fallegan drenginn, eða eins og I like to call them; Óskar, Arnar Bjarka og Hinrik. Afmælisbarnið skemmti sér vonum framar, enda ekkert annað hægt ef maður er í slagtogi við eins brilliant manneskju og mig!
P.S. myndir af afmælisbarninu eru komnar!
Kveðjupartý, París og Saga ClassBrynja Bergmann Halldórsdóttir
Sökum takmarkaðs aðgangs að tölvu og internetinu hef ég ekki getað skrifað það sem drifið hefur á dagana hjá mér núverið. Ég biðst innilegrar afsökunar á því og vona að þessi skrif bæti það upp...Fimmtudagurinn 1. mars
Við stelpurnar fórum í síðasta skiptið á happy hour saman. Við byrjuðum á Del Môn þar sem við sötruðum hvítvín, og fórum síðan á Cubanito þar sem við fengum okkur Mojito og tapas. Eftir þessa stórskemmtilegu byrjun á kveldi skelltum við okkur á fínan matsölustað þar sem við stelpurnar og Felipe fengum okkur síðustu kvöldmáltíðina saman....
Enduðum kvöldið svo á miklu spjalli á Café Josep ásamt nokkrum bjórglösum.
Föstudagurinn 2. mars
Síðasti dagurinn okkar Báru í Montpellier og urðum við því að nýta hann vel! Við Bára fórum í verslunarleiðangur og keyptum plaggöt, bækur, kápu og margt annað sem við vildum taka með heim til Íslands. Skelltum okkur svo auðvitað á Brioche Dorée og fengum okkur smurt baguette og Pepsi. Nammi-namm....
Seinna um kvöldið gerðum við okkur og íbúðina fína og biðum eftir gestum í kveðjuteitið. Margur maðurinn og konan heiðruðu okkur með nærveru sinni, og má sem dæmi nefna Kristínu litlu, Einar og Sesselju, Line og Siggu Dóru, Felipe og Fred, Carmelo, Jennifer, Clara, Jason og fleiri góða. Stórskemmtilegt kveðjukvöld sem gerði manni enn erfiðara fyrir að kveðja Montpellier.
Laugardagur 3. mars
Við Bára vöknuðum fyrir allar aldir, eftir aðeins tveggja tíma svefn, til að taka lest til Parísar. Við kysstum stelpurnar bless og lögðum af stað í ferðina endalausu (að okkur fannst). Þegar komið var til Parísar tók hópur kvenna á móti okkur, en allar konurnar í fjölskyldunni hennar Báru ákváðu að eyða nokkrum dögum með okkur í París (þ.e. systir hennar, mamma, amma og frænka).
Eftir að hafa komið okkur vel fyrir á hótleinu gengum við dágóðan spotta og skoðuðum m.a. Notre Dame kirkjuna og Gyðingagötuna frægu.
Sunnudagurinn 4. mars
Vöknuðum snemma og snæddum morgunverð á Café Paris. Skoðuðum allnokkur listaverk í Louvre og fengum okkur svo hressingu á einu vinsælasta kaffihúsi Parísar, Angelinu. Þegar þangað var komið þurftum við að bíða í ca. korters röð sem myndast hafði fyrir utan kaffihúsið, enda ekkert smá flott kaffihús þar á ferð! Gengum svo heim á hótelið og sáum Pompedue safnið á leiðinni. Seinna um kvöldið fórum við svo fínt út að borða en tilefnið var afmæli hennar Báru, ömmu hennar Báru Dísar, en hún var 65 ára þennan dag. Til hamingju!
Mánudagurinn 5. mars
Dagurinn einkenndist af miklu labbi. Við gengum Champs Elysées og sáum Sigurbogann, fórum þaðan að sjá Eiffelturninn og skelltum okkur svo í risastórt moll. Komum við í skúla á leiðinni heim og keyptum okkur snarl til kvöldverðar. Fórum dauðþreyttar í háttinn.
Þriðjudagurinn 6. mars
Ákveðið var að eyða deginum til að versla og hefðum við ekki getað valið betri dag þar sem það ringdi allan daginn. Við skelltum okkur í HogM þar sem við eyddum dágóðu tíma og fórum svo á Gyðingakaffihús í Gyðingagötunni sem reyndist vera hið besta kaffihús! Borðuðum kvöldmat á Café Indiana við Bastillutorgið og fórum svo heim að pakka. Þennan dag átti pabbi minn afmæli og óska ég honum innilega til hamingju með það!
Miðvikudagurinn 7. mars
Vöknuðum snemma og fórum út á flugstöð. Fengum okkur smurt baguette og Pepsi á Brioche Dorée í síðasta skiptið og gengum svo inn í flugvélina. Flugum heim í Saga Class þar sem ég og Bára drukkum kampavín eins og fínar frúr. Fengum svo matseðil og pöntuðum okkur dýrindis málsverð. Ég fékk mér ávexti í forrétt, lambalundir í aðalrétt og mussé í eftirrétt. Nammi-namm.....
Flugferðin gekk extra vel fyrir sig og án efa ein skemmtilegasta flugferð sem ég hef farið í! Fullkominn endir á æðislegu ferðalagi!
Bless kæra Montpellier....Brynja Bergmann Halldórsdóttir
Dagurinn í dag er merkilegur að tvennu leiti:- Þetta er síðasti dagurinn minn og Báru hér í Montpellier
- Erla Hlíf verður tvítug í dag!
Við Bára munum taka lest til Parísar í bítið í fyrramálið og vera þar þangað til á miðvikudaginn, en þá tökum við flugið heim til kalda Íslands!
En nóg um það.... Stórafmæli Erlu fóstursystur er hápunkturinn á deginum í dag!
Þessa litlu vísu mun ég rita á bloggið henni til heiðurs:
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Erla Hlíf
Hún á afmæli í dag!
Hún er tvítug í dag
Hún er tvítug í dag
Hún ervítug hún Erla Hlíf
Hún er tvítug í dag!!
Elsku Erla mín. Innilega til hamingju með árin 20. Njóttu dagsins en passaðu þig á að missa þig ekki í gleðinni!

(Myndir af afmælisbarninu komnar á bloggið)
Næsta bloggfærsla mun örugglega ekki koma fyrr en eftir að ég kem heim svo....
Þangað til ég kem heim til Íslands!
Kveðja Brynja
Aix en Provence og MarseilleBrynja Bergmann Halldórsdóttir
Í gær vöknuðum við Bára og Hjördís fyrir allar aldir og dressuðum okkur upp fyrir ferðalag til Aix en Provence sem reyndist miklu lengra en gert var ráð fyrir. Við drifum okkur út á lestarstöð, keyptum okkur miða aðra leið, og hentumst upp í lestina.Í Aix eru tvær lestarstöðvar, ein inni í borginni og hin rétt fyrir utan. Auðvitað lentum við á lestarstöðinni sem er rétt fyrir utan svo borgina svo við þurftum að taka rútu til Aix. Nokkrar mínútur voru í næstu rútu svo ekkert var að gera nema setjast niður á lestarkaffihús og fá sér kaffisopa, svona aðeins til að vakna til lífsins.
Þegar í bæinn var komið leið ekki á löngu þangað til við fundum safn til að skoða, en það safn hafði að geyma teikningar eftir listmálarann Marc Chagall. Eftir að hafa eytt nokkrum tíma þar inni tók við leitin að aðal listasafni borgarinnar, Musée Granet. Þar sem við erum ratvísar ungar hnátur fundum við safnið, og ekki bara það, heldur mjög fallega kirkju sem stóð við hlið safnsins. Ákváðum við að kíkja inn í kirkjuna áður, sem við sáum sko alls ekki eftir, því þegar við gengum inn tók á móti okkur þessi undurfagri kirkjusálmur. Verið var að messa svo við stelpurnar ákváðum bara að fá okkur sæti á aftasta bekk og fylgjast aðeins með.
Eftir ca. 15 mín. ákváðum við að færa okkur yfir í næsta hús, þ.e. Musée Granet og skoða öll þau verk sem það hafði upp á að bjóða. Það sem fangaði mest áhuga okkar stelpnanna var sýningin um Cézanne, en hann er víst einn þekktasti listmálari Aix en Provence.
Eftir dágóðan tíma inni í þessu blessaða safni tók við leit að einhverju ætilegu. Fundinn var ágætis veitingastaður og hungrið seðjað. Eftir matinn lá svo leið okkar að sjá Dómkirkjuna. Kirkjan sú er mjög athyglisverð, stór og grá nema altarið, sem var alltof mikið skreytt. Því miður fyrir okkur var engin messa í gangi.

Eftir að hafa skoðað tvö söfn og tvær kirkjur ákváðum við að það væri ekkert fleira skemmtilegt fyrir okkur að sjá í Aix svo við ákváðum að taka lest til Marseille.
Þegar á lestarstöðina var komið sáum við að næsta lest til Marseille myndi ekki fara fyrr en eftir klukkutíma svo við ákváðum bara að taka rútu, þó rútuferðin tæki rúman klukkutíma.
Eftir rútuferðina tók við svaka gönguferð með Hjördísi í fararbroddi en næsti áfangastaður var höfnin í Marseille. Frá höfninni gátum við séð frægustu kirkju Marseille, Basilique Notre Dame de la Garde, sem staðsett er uppi á toppi fjalls, hreint stórkostleg.
Sökum æðislegs veðurs, glampandi sólar og 15-20°C hita, settumst við á útikaffihús við höfnina og og fengum okkur smá hressingu. Eftir það lá leið okkar í leit að HogM, en hún átti víst að vera einhvers staðar í nágrenninu. Eftir hjálp frá ungri Frakklandsmær rötuðum við á réttan stað en sökum lítills tíma gátum við aðeins eytt 40 mínútum þar inni. En, það er betra en ekki neitt!
Eftir verslunarferðina tók við extra hröð ganga upp á lestarstöð þar sem næsta lest til Monpellier var tekin. Um níu leitið gengum við inn um dyrnar á íbúðinni okkar, aldeilis sáttar eftir viðburðaríkan dag!
Seinna sama kvöld ákváðum við Bára að kíkja aðeins út fyrir einn drykk þar sem við erum nú bráðum að fara af landi brott. Við klæddum okkur fínar og gengum niður í andyri. Okkur til mikilla vonbrigða gátum við ekki opnað útidyrnar það sem við vorum ekki með lykla og stelpurnar hefðu farið út með sína lykla á sér! (Útidyrnar höfðu verið eyðilagðar í partýinu hjá Carmelo síðasta laugardag.) Þannig að ég og Bára fórum bara aftur upp í íbúðina og biðum eftir stelpunum. Þegar þær loksins komu heim voru allir barir lokaðir en af því við vorum að hafa fyrir því að hafa okkur til þá skruppum við bara á McDonald´s og fengum okkur shake.

(Myndir komnar á bloggið)
Teiti, leti, Nimes!Brynja Bergmann Halldórsdóttir
Á föstudaginn fengum við stelpurnar heimsókn frá Carmelo, nágranna okkar hinum megin við ganginn. Hann kom til að bjóða okkur í teiti til sín um kvöldið, en í skiptum þurftum við að hýsa risastóra hljómborðið hans, svona rétt á meðan teitinu stæði. Þar sem við erum frábærir nágrannar urðum við að bón hans. Carmelo, eða Carmelito eins og við stelpurnar köllum hann, er þekktur fyrir að halda stærstu og skemmtilegustu teitin í allri Montpellier svo við gátum ekki látið okkur vanta á svona merkan atburð en þar sem áætlað var að fara til Aix daginn eftir þá ákváðum við að vera ekki of lengi. Þegar kvölda tók og við gengum teitið í, mætti okkur þessi svakalega mannmergð, en ætla má að í þessari 95 fm íbúð hafi verið um 150 manns! Þar voru saman komnar allrar þjóða sálir, s.s. Frakkar, Spánverjar, Svíar, Íslendingar, Kólumbíubúar, Argentínubúar og svona má lengi telja.... Aldeilis litríkt og skemmtilegt teiti.Þar sem ein okkar vaknaði veik á laugardagsmorguninn urðum við að fresta ferðalaginu til Aix um óákveðinn tíma. Í staðinn höfðum við það rólegt og glömruðum á píanóið hans Carmelo allan liðlangan daginn.
Í hádeginu í dag (mánudag) tókum við Bára og Hjördís okkur til og skelltum okkur með lest til Nïmes. Þegar þangað var komið lá leið okkar beint í coloseum-ið Aréne, sem er eitt best varðveittasta hringleikahús í Evrópu. Sagan segir að þar hafi Hollywood-myndin Glatiator verið tekin upp að hluta til! Við skruppum inn í Aréna og fengum þar einhvers konar leiðsagnarsíma sem leiddi okkur um alla hluta byggingarinnar, stóra sem smáa. Eftir það fórum við á kaffihús og fengum okkur smá hressingu. Næst lá leið okkar að Maison Carré, en það er eitt af 10 merkilegustu byggingum Frakklands samkvæmt bókinni Lonely Planet (France). Við skoðuðum Maison Carré hátt og lágt að utan, gengum eitthvað um bæinn og tókum svo lest heim um kvöldmatarleytið, sáttar með viðburðaríkan dag.
Kveðja Brynja
(Myndir komnar á bloggið)
Arna Liv 9 ára!!!!Brynja Bergmann Halldórsdóttir
Þessi bloggfærsla er algerlega tileinkuð litlu systur minni, henni Örnu Liv, sem verður 9 ára í dag.Elsku Arna Liv mín, hér er afmælissöngurinn fyrir þig:
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Arna Liv
Hún á afmæli í dag
Hún er 9 ára í dag
Hún er 9 ára í dag
Hún er 9 ára hún Arna Liv
Hún er 9 ára í dag
Veeeiiiiii……!!!

Innilega til hamingju með afmælið litla maslínan mín!!

Hafðu það gott í dag og passaðu þig á því að borða ekki of mikið af kökum!

Þín systir, Brynja
P.S. myndir af afmælisbarninu eru komnar í albúmið Afmælisbörn
Lestin er að fara....Brynja Bergmann Halldórsdóttir
Í gær skelltum við stelpurnar okkur í innkaupaleiðangur og keyptum í matinn fyrir næstu tvær vikur. Þar sem innkaupin tóku allverulega á, líkamlega jafnt sem andlega, ákváðum við að verðlauna okkur með því að hafa fajitas í kvöldmatinn. Allar hjálpuðumst við að og uppskárum eins og við sáðum, maturinn var hreinasta lostæti! Eftir matinn komum við okkur svo notalega fyrir og horfðum á Friends. Mjög notalegt og bragðgott fimmtudagskvöld! (Myndir komnar á netið)En nóg um það….. Í dag ætlum við stelpurnar að skreppa á lestarstöðina og fjárfesta í fjórum miðum til Aix en Provence, en áætlað er að við förum þangað í bítið í fyrramálið. Fyrir þá sem ekki vita hvernig borg Aix er þá fór ég á heimasíðu hennar og fann þessa umfjöllun: “Town of water, town of art... Everyone knows that Aix was built and has developed around this dual identity. But the town also knows how to blend different eras and culture. Open to the world, it is a city of human dimension where the preserved heritage and the city of tomorrow blend perfectly. Here, all is colour and sensation: the light of the sky, the golden stone of the facades, the transparent green of the fountains, the shade of the plane trees, surprises held by the festival nights...” So, there you have it!
Borgin á víst að vera mjög falleg og hlökkum við stelpurnar mjög mikið til þess að koma þangað! Það er nú samt ekki hápunkturinn á morgundeginum því hún Arna Liv litla systir verður 9 ára á þessum dýrindis degi!

Jæja, nú er þetta komið gott.
Þangað til næst.
Kveðja Brynja
Dagurinn í gær og dagurinn í dag...Brynja Bergmann Halldórsdóttir
Í gær skruppum við Hjördís og Bára í göngutúr að sjá grasagarð Montpellier. Við vorum allar sammála um að garðurinn væri mjög fallegur en það eina sem kom okkur á óvart var að það væri bannað að koma með hund inn í garðinn!!Eftir dágóðann göngutúr snérum við svo heim en komum á leið okkar við í bakarí og keyptum éclaire, sem er nokkurs konar frönsk týpa af bollu eins og við fáum heima á bolludaginn. Um kvöldmatarleytið var svo snædd pastasúpa sem koma átti í stað fyrir saltkjöt og baunir. Hún var mjög góð.
Seinna um kvöldið kíktum við á kaffihús með hinum kólumbíska Felipe og Fred hinum sænska. Áttum þar ágætt kvöld í góðra vina hópi.
- - - -
Í dag skruppum við Bára, Hjördís og vinkonur hennar Hjördísar á mjög stórt listasafn í Montpellier, Musée Fabre. Þar eyddum við dágóðum tíma og sáum hin ýmsu mál- og listaverk. Ég og Bára vorum meira að segja skammaðar fyrir að standa of nálægt málverkunum, en svona er að vera menningalegur, maður bara ræður ekki við sig og sogast gjörsamlega að allri þessari dýrð!
Sæl að sinni....
Kveðja Brynja
Hundakúkur....Brynja Bergmann Halldórsdóttir
Svo virðist sem aðaltískan hér í Frakklandi sé að eiga hunda og taka þá með þér hvert sem maður fer! Þeim er leyfilegt að koma inn í fatabúðir, matvöruverslanir, símabúðir, strætó, lestir, kaffihús, bari, ja bara hvert sem er! Og það sem best (verst) er, er að þeir mega kúka hvar sem er og eigendunum er ekki skylt að hreinsa það upp!! Ég er því miður ein af þeim fjölmörgu sem hafa stigið í eitt stykki klessu og er búin að fá mig alveg fullsadda af þessum skít!! Mér finnst það alger eyðilegging á fallegum borgum að hafa skít hér og þar á gangstéttunum, það dregur svo úr sjarmanum!Ekki fyrr en eftir komu mína hingað náði ég að meta að verðleikum hversu hrein og vel lyktandi Reykjavíkurborg er! Það sem ég hlakka einna mest við komu mína heim er að eiga það ekki stanslaust í hættu að stíga í hundaskít!!
Þangað til ég stíg næst í skít,
Brynja
Gleði, gleði...Brynja Bergmann Halldórsdóttir
Kæru lesendur.Ég biðst innilegrar afsökunar á skrifleysi mínu, en síðasta færsla sem tók mig heila 4 klukkutíma, vistaðist ekki í kerfinu svo ég fór í hálfgerða fýlu og nennti ekki að setjast fyrir framan tölvuna fyrr en nú. Þar sem margt hefur drifið á daga mína hér í Frakklandi undanfarið þá mun ég skrifa stuttan útdrátt um hvern dag fyrir sig.
Miðvikudagurinn 7. febrúar (Myndir eru komnar á netið)
Þorrablót var haldið heima hjá Sesselju og Einari klukkan 7 stundvísilega! Þar sem pabbi hennar Báru er algjör ljúflyndismaður, keypti hann fyrir okkur harðfisk og sendi til okkar svo við gætum tekið með í þorrablótið. Þar var á boðstólnum salat, ristað brauð, graflax og sósa, harðfiskur, kex og ostar, sterk pulsa og ópal. Allir skemmtu sér konunglega og var dansað fram á rauða nótt við íslenska slagara á við; Hvar er draumurinn og Sódóma.
Fimmtudagurinn 8. febrúar
Ég og Hinrik skelltum okkur á Australian bar að hitta Siggu Dóru og nýju stelpuna í bekknum, Line frá Noregi. Þar spjölluðum við um allt milli himins og jarðar og skelltum okkur svo á dansgólfið og stigum þar nokkur spor. Það var gaman.
Föstudagurinn 9. febrúar (Myndir eru komnar á netið)
Ég, Hinrik og Bára skruppum í flottustu bílaleygu bæjarins og leygðum glænýjan Renault Clio. Þegar allir voru tilbúnir til brottfarar var lagt af stað til Nice þar sem Gyða og Brynhildur höfðu boðist til að hýsa okkur. Seinna um kvöldið skruppum við út til að tékka á skemmtanalífi borgarinnar sem var bara mjög skemmtilegt!
Laugardagurinn 10. febrúar (Myndir eru komnar á netið)
Vöknuðum hress og kát og skelltum okkur á KFC. Á leið okkar þangað þurftum við að labba fram hjá HogM sem var okkur stelpunum mjög erfitt því við höfðum ekki tíma til að kíkja þar inn og versla. Eftir matinn var haldið til Monaco þar sem sportbílar, snekkjur og glæsivillur voru hvert sem litið var! Meira að segja göturnar lyktuðu af peningum! Þar kíktum við á konungshöllina og áttum lítið tjatt við Albert prins. Næst lá leið okkar á súkkulaði-kaffihús þar sem hvíldir voru þreyttir fætur og kort skrifuð. Þegar allir höfðu klárað drykkina sína var strætó tekinn að flottasta Casino bæjarins, Casino de Monte Carlo. Þar missti ég mig aðeins í gleðinni svo Hinrik og Bára þurftu að draga mig þaðan út! Aðeins ein manneskja labbaði þaðan út með bros á vör en það var hún Bára sem græddi heilar 40 evrur!! (…lucky bastard!)
Kvöldið í Monaco endaði á dásamlegum líbönskum veitingastað að nafni Black Diamond þar sem ég, Bára og Hinrik fengum okkur langþráða nautalund. Nammi-namm… Eftir matinn ákváðum við Hinrik að fá okkur eftirlæti kokksins í eftirrétt. Eftir að hafa smakkað hann vorum við sammála um að þessi kokkur hefði mjög lélegan smekk! Síðan var keyrt aftur til Nice þar sem allir skiptu um föt og drifu sig út á lífið.
Sunnudagurinn 11. febrúar (Myndir eru komnar á netið)
Við stelpurnar vöknuðum snemma til að skoða Nice. Hjördís tók okkur í skoðunarferð þar sem hún hefði verið þarna áður og sáum við margt fallegt. Enduðum svo skoðeríið á rosa góðum restaurant. Eftir það fórum við heim að ná í Hinrik og keyrðum af stað til Ítalíu. Þegar aðeins 5-10 km voru í komu okkar að landamærunum villtumst við í lítilli borg sem Guð má vita hvað heitir. Við ákváðum að fylgja frekar skiltum borgarinnar því meiri líkur væru á því að við værum að lesa kortið vitlaust. Okkur til mikillar vonbrigða vísuðu skiltin okkur í vitlausa átt svo við ákváðum bara að halda heim á leið, klukkan var orðin svo margt. Um miðnætti vorum við komin heim, extra sátt með helgina!
Mánudagurinn 12. febrúar
Við tókum deginum með ró og slökuðum á.
Þriðjudagurinn 13. febrúar
Um kvöldið skelltum okkur út að borða á ódýran en mjög góðan pizza-stað. Þar næst lá leið okkar á Australian bar, en sökum mjög langrar raðar fórum við á staðinn við hliðina á sem var bara hreint ágætur. Á leiðinni heim hrasaði ég sökum of hárra hæla og snéri mig. Það var vont. Krakkarnir skruppu á Rockstore á meðan ég fór heim og setti kalt á bólguna mína, ekkert alvarlegt samt.
Miðvikudagurinn 14. febrúar (Myndir eru komnar á netið)
Ég fór með skólanum í vínsmökkun og tók sambýlinga mína með. Skólastjórinn var með okkur og vinur hans svo við vorum 11 talsins. Eftir vínsmökkunina skelltum við okkur á bari tvo og dönsuðum af okkur fæturnar. Voða gaman!
Fimmtudagurinn 15. febrúar (Myndir eru komnar á netið)
Enginn mætti í skólann sökum of mikils höfuðverkjar.
Seinna um kvöldið var svo haldið kveðjupartý fyrir Hinrik sem átti að taka flugið heim daginn eftir. Margt var um manninn og gleðin var við völd. Fyndnasti punktur partýsins var þegar við vorum hópur fólks að dansa með opinn glugga og tramminn stoppaði fyrir utan. ALLIR í tramminum voru að horfa og hlæja en við ákváðum bara að halda kúlinu og veifuðum og fengum allnokkur veif á móti!

Föstudagurinn 16. febrúar
Hinrik svaf yfir sig og rétt missti af lestinni. Til að reyna að ná fluginu tók hann næstu lest en rétt missti af því. Greyið Hinrik...
Sem betur fer fékk Hinrik að breyta miðanum og taka flugið daginn eftir.
Um kvöldið slökuðum við stelpurnar bara á, söknuðum Hinriks og horfðum á Friends.